Fréttir
Vetrarfrí
Föstudaginn 23. október og mánudaginn 26. október er vetrarfrí í Myllubakkaskóla. Þessa daga er engin kennsla og frístundaskólinn er lokaður. Kennsla hefst aftur skv. stundaskrá þriðjudaginn 27. október....
Lesa meiraBleikur dagur
Október er mánuður Bleiku slaufunnar, árveknis- og fjáröflunarátaks Krabbameinsfélags Íslands gegn krabbameinum hjá konum. Af því tilefni ætlum við í Myllubakkaskóla að klæðast einhverju bleiku föstudaginn 16. október. Með því sýnum við samstöðu í baráttunni og vonum við að sem flestir taki þátt....
Lesa meiraSamskiptadagur 13. október
Nemendur mæta í viðtal ásamt foreldrum/ábyrgðarmönnum samkvæmt boðunarblaði frá umsjónarkennara. Frístundaskólinn er opinn frá kl. 8:10-16:00 fyrir þá sem eru skráðir í hann....
Lesa meiraSkemmtilegt póstkortaverkefni
Freydís Kneif kennir valáfangann Erlend samskipti sem er fyrir nemendur í 8.-10. bekk. Nemendurnir í áfanganum auglýstu á facebook eftir póstkortum og lofuðu að svara öllum til baka sem myndu senda póstkort til skólans. Mynd af hópnum var sett á facebook 27. ágúst sl. og var henni deilt um allan heim. Fyrstu póstkortin bárust 3. september og hafa k...
Lesa meiraNemendaráð 2015-2016
Nú er búið að velja í nemendaráð Myllubakkaskóla fyrir komandi skólaár. Í því sitja 14 nemendur sem koma úr 6. - 10. bekk. Dagskrá vetrarins mun birtast undir Félagsstörf von bráðar. Í nemendaráði eru: Gunnhildur Hjörleifsdóttir 6. ÍH Bergrún Dögg Bjarnadóttir 7. HT Rúnar Smári Sigurðarson 7. HT Einar Sveinn Vilmundarson 8. SI Helga Sveinsdóttir 8....
Lesa meiraEldstæði á útikennslusvæðinu
Verið er að hanna eldstæði á útikennslusvæði Myllubakkaskóla við Miðtún. Starfsmenn eru fullir tilhlökkunar að geta byrjað að nota eldstæðið í útikennslu....
Lesa meiraBókagjöf
Skólamatur færði okkur nú á dögunum bókina Lífskraftur, næringarfræði fróðleiksfúsra eftir Ólaf Gunnar Sæmundsson næringarfræðing. Bókin á eftir að nýtast okkur vel hér í Myllubakkaskóla og þökkum við Skólamat kærlega fyrir gjöfina. Júlía Mjöll og Margrét Ír með bókina....
Lesa meiraHreyfivikan heppnaðist vel
Hreyfivikan heppnaðist ótrúlega vel. Nemendur voru ánægðir með tilbreytinguna og skemmtu sér konunglega í leikjum, dansfjöri, keppnum og fleiru. Myndir má sjá í myndasafni og á facebook síðu skólans....
Lesa meiraHreyfivika
Þessa vikuna er hreyfivika í Myllubakkaskóla. Hugmyndin af henni er annars vegar evrópska átakið “Now we move” sem var sett á laggirnar árið 2012 og er þá septembermánuður nefndur “moveweek”. Hins vegar er þessi vika “Heilsu- og forvarnarvika í Reykjanesbæ” og fannst okkur því tilvalið að vera samferða með hreyfivikuna okkar. Við ætlum öll að taka ...
Lesa meiraMá ég vera memm?
Harpa Lúthersdóttir rithöfundur færði nýverið Myllubakkaskóla 30 eintök af bók sinni Má ég vera memm? Bókin er um Fjólu sem er að byrja í skóla. Hún er spennt að byrja en ekki fer allt eins vel og hún hafði vonað. Fjólu líður ekki vel í skólanum því hún eignast ekki vini, er strítt og er lögð í einelti af bekkjarfélögum. Harpa lenti sjálf í einelti...
Lesa meiraMyllubakkaskóli er hnetulaus skóli

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.