Fréttir
5. bekkur heimsótti Víkingaheima
Þessar vikurnar eru nemendur í 5. bekk að fræðast um ferðir þeirra feðga Eiríks rauða og Leifs heppna. Af því tilefni fór bekkurinn ásamt kennurum í heimsókn í Víkingaheima. Þar skoðuðu nemendurnir skipið Íslending og fleiri muni sem þar eru til sýnis. Fengu m.a. að halda á eftirlíkingum af sverðum og öðrum vopnum víkingatímans. Myndir úr heimsókin...
Lesa meiraForeldrafundir 8. - 10. september
Nú er komið að hinum árlegu haustforeldrafundum. Foreldrar nemenda í 9. og 10. bekk mæti þriðjudaginn 8. september. Foreldrar nemenda í 5. - 8. bekk mæti miðvikudaginn 9. september og foreldrar nemenda í 1. - 4. bekk mæti fimmtudaginn 10. september. Allir fundirnir hefjast klukkan 18:00 og eru í um klukkustund. Hlökkum til að sjá ykkur....
Lesa meiraSkertur dagur
Föstudaginn 4. september er áætlað að fara með alla nemendur í göngu og er nauðsynlegt að allir séu klæddir eftir veðri og með nesti til að fara með í gönguferðina. Þetta er skertur nemendadagur og eru nemendur búnir í skólanum klukkan 11:10 . Þeir sem eru í mataráskrift geta borðað hádegismat áður en haldið er heim á leið. Frístundaskólinn er st...
Lesa meiraSetning Ljósanætur
Setning Ljósanætur fór fram í dag. Nemendur skólans fóru í skrúðgöngu og sameinuðust svo öðrum skólum úr Reykjanesbæ á lóð skólans. Sungin voru nokkur lög og gaman var að heyra hversu vel allir tóku undir. Fleiri myndir má sjá í myndasafni....
Lesa meiraSkólasetning
Myllubakkaskóli verður settur mánudaginn 24. ágúst. Nemendur mæti til skólasetningar á sal skólans sem hér segir: kl. 9:00 2., 3. og 4. bekkur kl. 10:00 5., 6. og 7. bekkur kl. 11:00 8., 9. og 10. bekkur kl. 13:00 1. bekkur Eftir setningarathöfn á sal fara nemendur í stofur með umsjónarkennara og fá stundaskrá og aðrar upplýsingar um ...
Lesa meiraSumarfrí
Skrifstofa skólans verður lokuð frá og með 22. júní til 5. ágúst. Skólasetning verður mánudaginn 24. ágúst 2015. Starfsmenn Myllubakkaskóla óska nemendum og fjölskyldum þeirra gleðilegs sumars....
Lesa meiraHvatningarverðlaun tónlistarskólans og Íslandsbanka
Marta Alda nemandi í 8. bekk í Myllbakkaskóla fékk hvatningarverðlaun tónlistarskólans og Íslandsbanka nú á vordögum. Verðlaunin fékk Marta Alda fyrir framúrskarandi árangur í tónlistarnámi sínu en hún lærir á fiðlu og píanó. Marta Alda hefur lokið miðprófi í fiðluleik og í tónfræðigreinum, auk þess hefur hún lokið grunnprófi í píanóleik. Þetta er ...
Lesa meiraSkólaslit
Skólaslit Myllubakkaskóla fóru fram í dag þriðjudaginn 9. júní. Nemendur mættu prúðbúnir á sal skólans þar sem skólastjóri fór yfir það helsta úr skólastarfinu. Kór Myllubakkaskóla söng og nemendur úr Tónlistarskóla Reykjanesbæjar fluttu tónlistaratriði. Sér athöfn var fyrir nemendur í 10. bekk þar sem Alma Vestmann útskrifaði sinn síðasta umsjónar...
Lesa meiraStarfsdagur og skólaslit
Mánudaginn 8. júní er starfsdagur kennara. Nemendur eiga frí þann dag og er frístundaskólinn lokaður. Þriðjudaginn 9. júní verða skólaslit Kl. 8:30 1. - 3. bekkur Kl. 9:30 4. - 6. bekkur Kl. 10:30 7. - 9. bekkur Kl. 12:00 10. bekkur Við hvetjum foreldra til að mæta með nemendum sínum....
Lesa meiraMyndasafnið
Nemendur hafa haft nóg að gera síðustu daga. Farið var í vorferðir, gönguferðir og margt fleira. Einnig var íþróttadagurinn í dag. Mikið af myndum hafa bæst við í myndasafnið og hvetjum við ykkur til að kíkja á þær. Sum staðar eru komnar nýjar möppur og annars staðar hafa bæst við myndir í eldri möppur t.d. hjá 2. bekk....
Lesa meiraMyllubakkaskóli er hnetulaus skóli

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.