5. bekkur heimsótti Víkingaheima
Þessar vikurnar eru nemendur í 5. bekk að fræðast um ferðir þeirra feðga Eiríks rauða og Leifs heppna. Af því tilefni fór bekkurinn ásamt kennurum í heimsókn í Víkingaheima. Þar skoðuðu nemendurnir skipið Íslending og fleiri muni sem þar eru til sýnis. Fengu m.a. að halda á eftirlíkingum af sverðum og öðrum vopnum víkingatímans.
Myndir úr heimsókinni er að finna á myndasíðu skólans.
Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.