Framkvæmdir
Hér mun skólinn birta myndir, skjöl o.fl. er varða enduruppbyggingu Myllubakkaskóla. Uppbyggingin hefur verið í gangi undanfarin misseri og eru áætluð verklok árið 2027. Þegar þeim lýkur mun skólinn geta tekið á móti 500 nemendum.
Íþróttahús skólans verður þá einnig fullbúið og munu allir nemendur stunda sínar íþróttir í því húsi. Það mun einnig verða góð viðbót fyrir íþróttafélög bæjarins enda verður það stærra en fyrirrennari sinn. Gamla íþróttahúsið var innan við 200 fm. en það nýja verður rúmir 600 fm. ásamt því að hafa áhorfendapalla og löglegan körfuboltavöll.
Það er mikið tilhlökkunarefni að geta boðið nemendum okkar og samfélaginu öllu upp á betri aðstöðu til íþróttaiðkunar.
Nýr matsalur verður í viðbyggingu skólans að framanverðu en hann mun bjóða upp á að fleiri nemendur geta borðað hádegismat í einu. Salurinn mun einnig vera með föstu sviði sem skólinn mun nýta sér til hins ítrasta, enda saga og menning skólans samofin listum og þá sérstaklega sviðslistum.
Meðfylgjandi er hlekkur á myndband sem sýnir hvernig skólabyggingin mun líta út þegar allt er frágengið og eru foreldrar og annað áhugafólk um uppbyggingu Myllubakkaskóla hvatt til að fylgjast með framgangi framkvæmda.
Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.