Sjúkrapróf og upptökupróf
Sjúkrapróf
Komist nemandi ekki í próf á tilsettum tíma merkir kennari prófið með nafni hans, dagsetningu og lokadagsetningu og skilar til skrifstofustjóra.
Kennari sendir foreldrum og nemanda tilkynningu um að prófið sé komið í sjúkraprófshólfið ásamt þeim tíma sem nemandi hefur til þess að leysa prófið.
Á fimmtudögum kl. 13:40-15:30 og föstudögum kl. 12.00-14.00 í stofu 10 geta nemendur leyst próf sem þeir hafa misst af. Mikilvægt er að nemendur virði þessi tímamörk og mæti stundvíslega.
Nemendur hafa að hámarki tvær vikur eftir að próf hefur verið lagt fyrir til að leysa það og er þá miðað við þá dagsetningu sem kennari skráir á prófið.
Sé nemandi veikur eða í leyfi í lengri tíma gildir sú regla að frá og með þeim degi sem hann kemur aftur í skólann hefur hann tvær vikur til að leysa prófin samkvæmt ofangreindu fyrirkomulagi.
Ekki er leyfilegt að sleppa kennslustund til þess að geta tekið sjúkrapróf.
Upptökupróf – þarfnast þjálfunar/hæfni ekki náð ( C / D )
Ef nemandi fær C/D í einkunn fyrir verkefni og þarfnast þjálfunar fyrir meirihluta hæfniviðmiða í því verkefni fer svona ferli af stað.
Kennari sendir póst heim og ræðir við nemanda um að taka prófið aftur eða þá hluta sem þarfnast þjálfunar.
Kennari merkir prófið með nafni hans, dagsetningu og lokadagsetningu og skilar til skrifstofustjóra.
Nemendur hafa að hámarki tvær vikur eftir að kennari sendir póst heim til að leysa prófið.
Nemandur þurfa að undirbúa sig heima fyrir þetta próf.
Á fimmtudögum kl. 13:40-15:30 og föstudögum kl. 12.00-14.00 í stofu 10 geta nemendur leyst prófið. Mikilvægt er að nemendur virði þessi tímamörk og mæti stundvíslega.
Ekki er leyfilegt að sleppa kennslustund til þess að geta tekið upptökupróf.
- Hljóðbækur
- Íþróttir og sund
- Sjúkra- og upptökupróf
- Nemendafélag
- Skólareglur
- Bekkjarnámskrá
- Valgreinar
- Valgreinabæklingar
- Lestur og stærðfræði
- Námsmat
Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.