• Skrifstofan er opin frá:

    Mán - fim: 7:45 - 15:30
    Fös: 7:45 - 14:00

  • Sími á skrifstofu

    420 1450

Viðja - sérhæft námsúrræði

Viðja er sérhæft námsúrræði við Myllubakkaskóla fyrir nemendur á einhverfurófi í 1.–10. bekk sem þurfa sérhæft námsumhverfi og einstaklingsmiðaðan stuðning. Viðja tók til starfa haustið 2025 og er hluti af skólasamfélagi Myllubakkaskóla.

Markmið Viðju er að skapa öruggt og hvetjandi námsumhverfi þar sem nemendur fá tækifæri til að læra og þroskast á eigin forsendum. Lögð er áhersla á vellíðan, virk tjáskipti, sjálfstæði og þátttöku í skólasamfélaginu.

Nám og kennsla

Kennslan byggist á aðalnámskrá grunnskóla og tekur mið af styrkleikum, áhuga og þörfum hvers nemanda. Unnið er eftir einstaklingsnámskrám þar sem sett eru markmið um nám, samskipti og færni í daglegu lífi.

Í Viðju er stuðst við hugmyndafræði TEACCH. Sjónrænt skipulag, skýr verkefni og fyrirsjáanlegar aðstæður hjálpa nemendum að átta sig á skóladeginum og vinna með auknu sjálfstæði. Námsaðstæður og lengd verkefna eru aðlöguð að hverjum nemanda og kennsla fer fram einstaklingslega og í minni hópum.

Samhliða bóklegu og verklegu námi er unnið markvisst með félagsfærni, tjáskipti og daglega færni. Fjölbreyttar tjáskiptaleiðir eru nýttar eftir þörfum, meðal annars myndrænn stuðningur, tákn og tjáskiptatæki.

Þátttaka í skólasamfélaginu

Lögð er áhersla á að nemendur upplifi sig sem hluta af skólasamfélagi Myllubakkaskóla. Þátttaka í kennslustundum og öðru starfi með jafnöldrum er skipulögð út frá þörfum, áhuga og forsendum hvers nemanda, með viðeigandi stuðningi.

Samstarf við heimili

Náið samstarf við foreldra og forsjáraðila er mikilvægur þáttur í starfi Viðju. Unnið er saman að markmiðum um nám, líðan og þroska nemenda og haft samráð við annað fagfólk sem kemur að þjónustu þeirra eftir þörfum.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um Viðju veita Anna Lilja Jóhannsdóttir, verkefnastjóri Viðju, og Hlynur Jónsson, skólastjóri Myllubakkaskóla.

Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli
Hnetulaus

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Foreldrafélag Myllubakkaskóla
  • FFGÍR
  • Reykjanesbær - Menntastefna
  • Reykjanesbær