Fréttir
Starfsgreinakynning
Mánudaginn 3. febrúar var haldin starfsgreinakynning í Íþróttahúsinu við Sunnubraut. Þar voru u.þ.b. 50 og 60 starfsgreinar kynntar af heimafólki. Um var að ræða nokkurs konar sýningu í íþróttasalnum þar sem nemendur gátu fengið fræðslu um eðli starfanna, menntun og fleira. Nemendur 9. og 10. bekkja Myllubakkaskóla heimsóttu kynninguna um morguninn...
Lesa meiraGettu enn betur
Spurningakeppnin Gettu enn betur verður haldin í matsal Myllubakkaskóla mánudaginn 3. febrúar kl. 19:00. Þetta er spurningakeppni með svipuðu sniði og Gettu betur og er á milli allra grunnskóla í Reykjanesbæ. Keppendur skólanna mega vera í 8.-10. bekkjum. Keppendur fyrir hönd Myllubakkaskóla eru Andri Snær og Jón úr 10. bekk og Saga úr 8. bekk. Öll...
Lesa meiraGóður afi er gulli betri
Í upphafi nýs árs fékk 10. bekkur AV í Myllubakkaskóla kærkomna heimsókn. Afi eins nemandans, Skúli Hermannsson, kom færandi hendi með kassa undir farsíma. Þetta er vandaður kjörgripur úr gegnheilli hnotu og rúmar 30 síma í einu. Hugmyndin er að nemendur setji símana sína í hann á meðan þeir eru í kennslustund en geti svo nálgast þá þegar þeir fara...
Lesa meiraStarfsdagur og samskiptadagur 27. og 29. janúar
Starfsdagur er í Myllubakkaskóla mánudaginn 27. janúar og eru nemendur því í fríi þann dag. Samskiptadagur verður miðvikudaginn 29. janúar. Þann dag mæta nemendur með foreldrum / forráðamönnum sínum í skólann og ræða við umsjónarkennara um námsframvindu og annað er viðkemur skólastarfinu....
Lesa meiraDiskótek í Njarðvíkurskóla fyrir 5. - 7. bekk
Sameiginlegt diskótek verður haldið í Njarðvíkurskóla þriðjudaginn 21. janúar. 5. bekkur kl. 17:00 - 18:30. 6. og 7. bekkur kl. 19:00 - 20:30. Frítt inn og sjoppa á staðnum....
Lesa meiraNámsmat - próftafla
Nú er námsmatið að hefjast. Próftöflu má nálgast hér....
Lesa meiraJólakveðja
Ágætu nemendur og foreldrar. Starfsfólk Myllubakkaskóla óskar ykkur gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Kærar þakkir fyrir heilladrjúgt samstarf á árinu sem er að líða. Skólastarf hefst aftur 6l janúar 2014....
Lesa meiraLeið til læsis orðið að veruleika
Aðstandendur verkefnisins Leið til læsis afhentu í gær Gylfa Jóni Gylfasyni, fræðslustjóra Reykjanesbæjar, afurð sína í húsnæði Bæjarskrifstofu Reykjanesbæjar. Um er að ræða handbók og gagnabanka sem munu nýtast grunnskólakennurum í 1. - 4. bekk í lestrarkennslu og í sérkennslu. Eva Björk Sveinsdóttir, Elínborg Sigurðardóttir og Heba Friðriksdóttir...
Lesa meiraVinningshafar í Jólalukku 10. bekkinga
Dregið var i Jólalukku 10. bekkinga Myllubakkaskóla 17. desember 2013. Þessar sáu um að draga Eftirfarandi aðilar hlutu vinninga. 1. Bláa Lónið: gjafakort f.3 Ester Jóhannesdóttir 2. Lín design: dúkur ...
Lesa meiraLitlu jólin
Litlu jólin verða föstudaginn 20. desember og það er jafnframt síðasti skóladagur ársins. Nemendur mæta í skólann kl. 9:00. Hátíðin hefst í heimastofum nemenda þar sem nemendur fá heitt kakó og piparkökur. 1., 3., 5., 7. og 9. bekkur fara á sal kl. 10:00 og dansa í kringum jólatréð í 30 mínútur og fara svo aftur í stofur til kl. 11:00. 2., 4., 6., ...
Lesa meiraMyllubakkaskóli er hnetulaus skóli

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.