• Skrifstofan er opin frá:

    Mán - fim: 7:45 - 15:30
    Fös: 7:45 - 14:00

  • Sími á skrifstofu

    420 1450

30. október 2026

Viðja hlýtur 1,4 milljóna króna styrk frá Blue Car Rental

Viðja hlýtur 1,4 milljóna króna styrk frá Blue Car Rental

Viðja, sértækt námsúrræði við Myllubakkaskóla, hlaut á dögunum rausnarlegan styrk að upphæð 1.400.000 krónur frá Blue Car Rental. Styrkurinn verður nýttur til kaupa á sérhæfðum námsgögnum og skynúrvinnslubúnaði fyrir nemendur Viðju.

Þetta er annað árið í röð sem Blue Car Rental styrkir Viðju. Fyrri styrkurinn nýttist meðal annars til kaupa á námsgögnum og uppbyggingar skynúrvinnslurýmis sem nú er hluti af daglegu skólastarfi nemenda.

Viðja tók til starfa haustið 2025 og er sértækt námsúrræði fyrir nemendur á einhverfurófi sem þurfa sérhæft námsumhverfi og einstaklingsmiðaðan stuðning. Lögð er áhersla á að skapa öruggar og hvetjandi námsaðstæður þar sem nemendur fá tækifæri til að læra og þroskast á eigin forsendum.

Uppbygging slíks námsúrræðis kallar á fjölbreytt námsgögn og búnað sem hægt er að aðlaga að þörfum hvers nemanda. Stuðningur Blue Car Rental hefur því verið mikilvægur liður í að efla starfið og skapa fjölbreytt tækifæri fyrir nemendur Viðju.

Nú á öðru starfsári hefur Viðja flutt úr bráðabirgðahúsnæði í varanlega aðstöðu innan Myllubakkaskóla. Flutningurinn markar mikilvæg tímamót og skapar góðar forsendur fyrir áframhaldandi þróun starfsins.

Við viljum færa Blue Car Rental okkar innilegustu þakkir fyrir rausnarlegan styrk og þann dýrmæta stuðning sem fyrirtækið hefur sýnt Viðju frá upphafi. Það er okkur mikils virði að finna fyrir slíkum velvilja og trausti á starfinu okkar.



 Mynd: Anna Lilja Jóhannsdóttir, verkefnastjóri Viðju, tekur við styrknum frá Blue Car Rental fyrir hönd námsúrræðisins.

Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli
Hnetulaus

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Foreldrafélag Myllubakkaskóla
  • FFGÍR
  • Reykjanesbær - Menntastefna
  • Reykjanesbær