• Skrifstofan er opin frá:

    Mán - fim: 7:45 - 15:30
    Fös: 7:45 - 14:00

  • Sími á skrifstofu

    420 1450

5. maí 2026

Vetraríþróttir að vori

Vetraríþróttir að vori

Nemendur í valgreininni Vetraríþróttir fóru í námsferð til Reykjavíkur miðvikudaginn 29. apríl. Rúmlega 60 nemendur í 8.- 10. bekk fóru með í ferðina ásamt starfsfólki.

Upphaflega stóð til að hópurinn færi á skíði á skíðasvæðið í Bláfjöllum. Margar tilraunir voru gerðar til þess að komast á skíðasvæðið í vetur en sökum snjóleysis og slæms veðurs gekk það ekki upp. Því var ákveðið að breyta skipulaginu og finna aðrar leiðir til að kynna nemendum fyrir vetraríþróttum.

Kennarar frá Íshokkískóla Skautafélags Reykjavíkur, Milos og Eddie, tóku á móti hópnum í Skautahöllinni í Laugardal. Þar fengu nemendur kennslu í grunntækni skautaiðkunar. Nemendur stóðu sig mjög vel á ísnum og tóku miklum framförum á þessum stutta tíma. Því næst hélt hópurinn á veitingastaðinn Olifa á Suðurlandsbraut þar sem var boðið upp á pizzu. Eftir hádegismatinn tók Gunnar Birgisson, íþróttafréttamaður á RÚV, á móti hópnum í húsnæði Íþróttasambands Íslands. Þar tók Gunnar Birgisson, íþróttafréttamaður á RÚV, á móti hópnum og veitti nemendum innsýn í starf sitt. Hann sagði frá reynslu sinni í kringum Ólympíuleikana sem íþróttafréttamaður og deildi því sem stóð upp úr á leikunum sem haldnir voru í Cortina á Ítalíu í vetur. Við þökkum honum kærlega fyrir að gefa sér tíma og taka á móti okkur.

Nemendur voru skólanum okkar til mikils sóma, þeir sýndu góða framkomu og voru kurteisir í ferðinni.

Þrátt fyrir að þessi ferð hafi tekist vel er stefnan áfram sú að komast í Bláfjöll næsta vetur.

Myndir frá ferðinni má finna á myndasíðu skólans.

 

Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli
Hnetulaus

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Foreldrafélag Myllubakkaskóla
  • FFGÍR
  • Reykjanesbær - Menntastefna
  • Reykjanesbær