Stóra upplestrarkeppnin í 7. bekk
Síðustu vikur hafa nemendur í 7. bekk tekið þátt í Stóru upplestrarkeppninni sem er árlegur viðburður í skólastarfinu. Keppnin hefst ár hvert á degi íslenskrar tungu þann 16. nóvember. Markmið keppninnar er að vekja athygli og áhuga í skólum á vönduðum upplestri og framburði.
Umsjónarkennararnir Ingibjörg Jóna Kristjánsdóttir og Kristjana Börg Vilhjálmsdóttir hafa unnið markvisst með nemendum í 7. bekk ásamt þeim Ásdísi Kjartansdóttur og Hebu Friðriksdóttur.
Þrettán nemendur voru valdir úr árgangnum til að taka þátt í skólakeppninni sem fram fór í Akademíunni þann 24. febrúar.
Þeir nemendur sem tóku þátt í skólakeppninni voru:
Ástrós Tekla Jóhannsdóttir
Elvar Þór Sigurðsson
Emilía Kolbrún Reynisdóttir Alvarez
Gabriela Rós Gunnarsdóttir Alvarez
Gabríel Hugi Place
Guðbjörg Antonía Guðfinnsdóttir
Halla Björk Guðjónsdóttir
Heiðdís Tómasdóttir
Hera Kristý Hafsteinsdóttir
Hugrún Helgadóttir
Kolfinnur Skuggi Ævarsson
Natalia Dziondziakowska
Sigurrós Dagný Jóhannesdóttir
Keppendur stóðu sig mjög vel og höfðu greinilega æft sig vel, bæði í skólanum og heima. Sigurður Ingimundarson kennari við Myllubakkaskóla, Ragna Finnsdóttir, fyrrum kennari í Myllubakkaskóla, og Kristjana Jónsdóttir kennsluráðgjafi á menntasviði fengu það erfiða verkefni að velja tvo fulltrúa semu munu keppa í lokakeppninni fyrir hönd skólans.
Sigurvegarar voru Halla Björk Guðjónsdóttir og Hugrún Helgadóttir en þær munu keppa fyrir hönd skólans í lokakeppninni þann 10. mars í Hljómahöll. Auk þeirra var Sigurrós Dagný Jóhannesdóttir valin sem varamaður. Natalía Dziondziakowska mun jafnframt lesa ljóð á sínu móðurmáli, pólsku, á lokakeppninni.
Nemendum úr 6. bekk var boðið að horfa á þar sem þeir munu taka þátt í keppninni á næsta skólaári. Allir nemendur 6. - 7. bekkjar voru til mikillar fyrirmyndar og hlustuðu af athygli.
Hér má sjá sigurvegarana Höllu Björk og Hugrúnu ásamt dómurum keppninnar Rögnu, Sigurði og Kristjönu.
Hér má sjá myndir frá keppninni.
Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.



