• Skrifstofan er opin frá:

    Mán - fim: 7:45 - 15:30
    Fös: 7:45 - 14:00

  • Sími á skrifstofu

    420 1450

26. maí 2026

Stjörnu-Sævar í heimsókn

Stjörnu-Sævar í heimsókn

Föstudaginn 22. maí fengum við í Myllubakkaskóla skemmtilega heimsókn þegar Sævar Helgi Bragason (Stjörnu-Sævar) kom og hélt fræðslu fyrir alla nemendur skólans.

Sævar Helgi sagði nemendum frá almyrkvanum sem verður hér á landi þann 12. ágúst og fræddi nemendur um sólmyrkva, geiminn og stjörnufræði á áhugaverðan og lifandi hátt. Nemendur voru mjög áhugasamir.

Fræðslan var í boði Reykjanes jarðvangs og GeoCamp Iceland og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir þetta frábæra framtak.

Jafnframt viljum við þakka Sævari Helga kærlega fyrir komuna og fyrir skemmtilega og fræðandi stund með nemendum okkar.

Hægt er að nálgast allar helstu upplýsingar um almyrkvann á vefsíðunni: https://solmyrkvi2026.is/ 

Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli
Hnetulaus

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Foreldrafélag Myllubakkaskóla
  • FFGÍR
  • Reykjanesbær - Menntastefna
  • Reykjanesbær