• Skrifstofan er opin frá:

    Mán - fim: 7:45 - 15:30
    Fös: 7:45 - 14:00

  • Sími á skrifstofu

    420 1450

11. maí 2026

Skemmtilegur dagur í Skólahreysti

Skemmtilegur dagur í Skólahreysti

Keppnislið Myllubakkaskóla stóð sig mjög vel í riðlakeppni Skólahreystis. Keppnin fór fram í Íþróttamiðstöðinni að Varmá í Mosfellsbæ miðvikudaginn 6. maí. Liðið átti upphaflega að keppa á fimmtudeginum en þar sem jarðarför Bryndísar Bjargar, fyrrverandi skólastjóra Myllubakkaskóla, fór fram þann dag fékk skólinn að færa keppnina yfir á miðvikudag. Við þökkum Skólahreysti teyminu kærlega fyrir liðlegheitin.

Til að minnast Bryndísar voru liðsmenn með sorgarbönd á keppnisbúningunum.

Mikil stemning skapaðist á unglingastigi á keppnisdaginn sjálfan. Nemendur sem fylgdu liðinu til Mosfellsbæjar voru með andlitsmálningu og höfðu útbúið stuðningsspjöld áður en haldið var af stað. Allt var þetta í bleikum tónum þar sem bleikur var litur liðsins í keppninni. Þá var jafnframt slegið til pizzaveislu áður en lagt var af stað með stuðningsliðið í rútu.

Eins og áður segir stóðu nemendur skólans sig mjög vel, bæði keppnisliðið og þeir nemendur sem fóru að hvetja liðið áfram. Nemendur voru skólanum til fyrirmyndar, bæði í rútunni og í stúkunni.

Liðið hafnaði í 5. sæti í sínum riðli eftir öfluga frammistöðu og mikla baráttu í krefjandi þrautum.

Keppnislið Myllubakkaskóla skipuðu Jónatan Axel, Joris Milleris, Benedikt, Julia Marta og Sultan Nasser úr 10. bekk ásamt Andreu Ísold og Unni Birtu úr 9. bekk.

Skólinn vill þakka keppendum sérstaklega fyrir þátttökuna og samnemendum þeirra fyrir að styðja liðið af krafti og vera skólanum til fyrirmyndar. 

Kolbeinn Skagfjörð og Marín Hrund héldu utan um keppnisliðið og Halla Karen skipulagði dagskrá fyrir stuðningsliðið og eiga þau þakkir skilið fyrir. 

Myndir frá deginum má finna á heimasíðu skólans.

Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli
Hnetulaus

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Foreldrafélag Myllubakkaskóla
  • FFGÍR
  • Reykjanesbær - Menntastefna
  • Reykjanesbær