• Skrifstofan er opin frá:

    Mán - fim: 7:45 - 15:30
    Fös: 7:45 - 14:00

  • Sími á skrifstofu

    420 1450

25. mars 2026

Skemmtileg árshátíð Myllubakkaskóla

Skemmtileg árshátíð Myllubakkaskóla

Árshátíð Myllubakkaskóla var haldin föstudaginn 20. mars og var þemað í ár Disneyheimurinn. Nemendur æfðu af fullum krafti undir leiðsögn starfsmanna í langan tíma og yfirtóku æfingar almennt skólastarf í góðar tvær vikur fyrir árshátíðina. Við teljum þær æfingar og allan þann undirbúning ótrúlega mikinn skóla og innlegg í reynslubankann hjá nemendum, því það er krefjandi að læra dansspor, línur og söngva, hvað þá að hanna leikmuni o.fl. svo ekki sé talað um að koma fram fyrir framan fullan sal af fólki. Við getum öll verið stolt af því hve nemendur stóðu sig vel.

Það var mjög ánægjulegt hversu margir aðstandendur sáu sér fært að mæta á þennan stórviðburð sem árshátíðin er í Myllubakkaskóla. Takk fyrir móttökurnar og að hafa komið og hvatt alla í Myllubakkaskóla áfram.

Myndir má finna í myndasafni.

Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli
Hnetulaus

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Foreldrafélag Myllubakkaskóla
  • FFGÍR
  • Reykjanesbær - Menntastefna
  • Reykjanesbær