• Skrifstofan er opin frá:

    Mán - fim: 7:45 - 15:30
    Fös: 7:45 - 14:00

  • Sími á skrifstofu

    420 1450

29. maí 2026

Popplestur í 1. - 7. bekk

Popplestur í 1. - 7. bekk

Lestrarátak var haldið hjá nemenum í 1. - 7. bekk dagana 27. apríl til 8. maí þar sem nemendur tóku þátt af miklum áhuga. Markmið átaksins var að hvetja nemendur til aukins lesturs og sýna fram á að lestur getur verið skemmtilegur.

Í átakinu söfnuðu nemendur poppbaunum fyrir þær mínútur sem þau lásu. Fyrir hefðbundnar 15 mínútur af heimalestri fengu þeir 5 poppbaunir og síðan eina baun til viðbótar fyrir hverja mínútu umfram það. Því meira sem lesið var, því fleiri poppbaunum var safnað.

Nemendur voru mjög áhugasamir og duglegir að lesa á meðan á átakinu stóð og greinilegt var að átakið vakti bæði gleði og metnað.

Í lok átaksins fjárfesti skólinn í flottri poppvél og var haldin skemmtileg uppskeruhátíð þar sem poppað var úr þeim baunum sem safnast höfðu. Nemendur nutu þar samverunnar og fögnuðu góðum árangri.

Á myndinni má sjá allar þær poppbaunir sem söfnuðust við lesturinn á þessum tveimur vikum.

 

 

Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli
Hnetulaus

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Foreldrafélag Myllubakkaskóla
  • FFGÍR
  • Reykjanesbær - Menntastefna
  • Reykjanesbær