• Skrifstofan er opin frá:

    Mán - fim: 7:45 - 15:30
    Fös: 7:45 - 14:00

  • Sími á skrifstofu

    420 1450

8. september 2026

Nýr salur Myllubakkaskóla fylltist af söng og gleði

Nýr salur Myllubakkaskóla fylltist af söng og gleði

Ánægjulegum áfanga var náð í endurbótum á Myllubakkaskóla í gær þegar allir nemendur skólans komu saman í fyrsta skipti í nýjum sal sem var tekinn í notkun í haust.

Hjördís Rós, tónmenntakennari, stýrði söngstund þar sem nemendur og starfsfólk tóku lagið saman og fylltu nýja salinn af söng. Söngstundir hafa verið fastur liður í skólastarfinu og því var einstaklega gaman að geta í fyrsta sinn komið öll saman í nýja salnum.  

Skólinn fékk svo heldur betur skemmtilegan gest í heimsókn. Páll Óskar Hjálmtýsson mætti og tók þátt í söngstundinni með okkur. Hann söng ásamt nemendum lagið „Eitt af blómunum" og er óhætt að segja að heimsóknin hafi vakið mikla lukku.  

Það var því mikil gleði og góð stemning í salnum og nemendur tóku vel undir. Það var sérstaklega gaman að sjá alla saman upplifa hversu vel salurinn hentar fyrir söng, samveru og viðburði af þessu tagi.  

Við hlökkum mikið til fleiri góðra stunda saman í nýja salnum okkar. 

Fleiri myndir má finna hér á myndasvæði skólans.

Hér er svo stutt myndbrot frá heimsókninni.

Páll Óskar syngur lagið Eitt af blómunum í nýjum sal Myllubakkaskóla.

Hjördís Rós tónmenntakennari skólans.

Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli
Hnetulaus

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Foreldrafélag Myllubakkaskóla
  • FFGÍR
  • Reykjanesbær - Menntastefna
  • Reykjanesbær