Myllukrakkar lásu í meira en 107 þúsund mínútur!
Nemendur í 2.–7. bekk Myllubakkaskóla tóku þátt í Svakalegu lestrarkeppninni, landskeppni í lestri sem stóð yfir frá 15. september til 6. október. Alls tóku 108 skólar á Íslandi þátt í keppninni en markmið hennar er að auka lestraránægju barna.
Nemendur skólans lásu samtals í 107.247 mínútur, að meðaltali 634 mínútur á nemanda. Mest lásu nemendur í 2. og 4. bekk, en báðir árgangarnir náðu yfir 800 mínútna meðaltali á nemanda.
Þetta er í annað sinn sem skólinn tekur þátt í keppninni og lásu nemendur töluvert meira í ár en í fyrra. Það er ánægjulegt að sjá framfarir og áhuga nemenda aukast.
Við óskum nemendum til hamingju og hvetjum þá til að halda áfram að njóta lesturs.

Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.



