• Skrifstofan er opin frá:

    Mán - fim: 7:45 - 15:30
    Fös: 7:45 - 14:00

  • Sími á skrifstofu

    420 1450

19. mars 2026

Myllubakkaskóli vann Gettu enn betur

Myllubakkaskóli vann Gettu enn betur

Lið Myllubakkaskóla stóð uppi sem sigurvegari í spurningakeppninni Gettu enn betur, spurningakeppni grunnskóla í Reykjanesbæ. Liðið hafði áður tryggt sér sæti í úrslitum með frábærri frammistöðu í undankeppninni. Í lokaviðureigninni, sem fram fór 11. mars síðasliðinn, bar liðið sigur úr býtum á móti liði Akurskóla eftir spennandi og jafna keppni.

Keppendur skólans voru þau Bryndís Ólína Skúladóttir, Guðbjörg Hera Leósdóttir og Benedikt Freyr Ragnarsson. Þau voru einbeitt og sýndu góða samvinnu í gegnum alla keppnin. Árangurinn er afar glæsilegur og mega þau vera stolt.

Þess má geta að Málfundafélagið Kormákur sá um keppnina og samdi jafnframt spurningar. Þeir eiga hrós skilið fyrir gott skipulag við utanumhald keppninnar.  

Myllubakkaskóli vill þakka Höllu Karen, umsjónarmanni félagsstarfa í Myllubakkaskóla, kærlega fyrir að hafa haldið vel utan um hópinn og hvatt þau áfram. Einnig viljum við þakka samnemendum á unglingastigi sem komu og studdu liðið áfram af krafti.

 

Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli
Hnetulaus

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Foreldrafélag Myllubakkaskóla
  • FFGÍR
  • Reykjanesbær - Menntastefna
  • Reykjanesbær