Myllubakkaskóli fær snjallsjónauka að gjöf
Fyrr í vikunni fékk Myllubakkaskóli snjallsjónauka af gerðinni Seestar S30 Pro Total Solar Eclipse Edition að gjöf. Reykjanes jarðvangur hafði frumkvæði af gjöfinni með styrk frá Kadeco og atNorth gagnaveri. Sævar Helgi vísindamiðlari, sem heimsótti alla grunnskóla á Reykjaenssvæðinu í aðdraganda að sólmyrkva síðastliðið sumar, mælti sérstaklega með þessum sjónauka vegna þess hversu auðveldur hann er í notkun. Sjónaukinn getur tengst snjalltækjum og gefur nemendum og kennurum færi á að kanna bæði himingeiminn og nærumhverfið.
Í framhaldinu mun Reykjanes jarðvangur, í samstarfi við Sævar Helga, skipuleggja námskeið fyrir kennara með því markmiði að kenna þeim að nýta hann í kennslu.
Sjónaukinn býður upp á fjölbreytta möguleika í náttúrufræði og vísindakennslu. Hægt er að skoða tunglið, reikistjörnur og aðra hluti í himingeimnum, auk sólarinnar með viðeigandi sólsíu. Sjónaukinn nýtist einnig til að fylgjast með náttúru og dýralífi á jörðu niðri. Hægt er að taka bæði myndir og myndbönd og skapa þannig tækifæri til lifandi kennslu og spennandi rannsóknarverkefna.
Starfsfólk og nemendur Myllubakkaskóla þakka kærlega fyrir gjöfina og hlakka til áframhaldandi samstarfs í þágu náttúrufræði og vísindakennslu.
Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.



