• Skrifstofan er opin frá:

    Mán - fim: 7:45 - 15:30
    Fös: 7:45 - 14:00

  • Sími á skrifstofu

    420 1450

7. maí 2026

Minningargrein - Bryndís Björg Guðmundsdóttir

Minningargrein - Bryndís Björg Guðmundsdóttir

Minning – Bryndís Björg Guðmundsdóttir

1. júní 1963 – 25. apríl 2026

Það er erfitt að setja í orð þá hlýju, kraft og áhrif sem Bryndís hafði á skólasamfélagið okkar. Hún var ekki aðeins samstarfsmaður eða leiðtogi, hún var Mylluhjartað okkar.

Bryndís sá alltaf styrkleikana í hverju barni. Hún leit ekki á það sem vantaði, heldur það sem var til staðar og hvernig mætti rækta það áfram. Fyrir henni voru þetta ekki bara nemendur heldur börn. Börn sem áttu skilið að líða vel, fá að blómstra og finna að þau skiptu máli. Hún var næm á líðan þeirra og ekki síður á líðan samstarfsfólks. Hún tók vel utan um fólk, lyfti því upp og hvatti áfram af einlægni og hlýju.

Hún var sýnileg í skólanum á þann hátt sem skiptir máli. Mætti snemma, eldaði hafragraut, var mætt upp á gang og tók á móti yngstu börnunum. Þar fengu þau oft knús, hlustun og öryggi áður en dagurinn hófst fyrir alvöru. Þau þekktu hana og fundu fyrir hlýju hennar.

Bryndís talaði fjölmenningu skólans upp sem styrk. Fyrir henni var hún ekki áskorun heldur gjöf, lærdómsrík gjöf fyrir alla sem störfuðu með börnum af ólíkum uppruna. Hún sá tækifærin í fjölbreytileikanum og hjálpaði öðrum að sjá þau líka.

Sköpun skipti hana miklu máli. Hún elskaði að sjá börn skapa, prófa sig áfram og blómstra í skapandi smiðjum. Hún var söngelsk og naut þess að sjá börn syngja og leika á sviði. Hún sat oft dáleidd og fylgdist með þeim stolt og glöð. Þessar stundir voru henni dýrmætar.

Bryndís var fagurkeri. Hún vissi að umhverfið skipti máli. Það að hafa fallegt í kringum sig hefur áhrif á líðan. Hvort sem það var í kennslurýmum eða á kaffistofunni, þá lagði hún sig fram um að skapa notalegt og hlýlegt andrúmsloft. Hún var jafnframt snyrtileg og dugleg, „með tuskuna á lofti“, og lét verkin tala.

Hún var líka sannkallaður sælkeri. Naut þess að gleðja starfsfólk með góðum mat og gúmmelaði, sem skapaði ótal ánægjustundir í amstri dagsins. Hún hafði einstakt lag á að gera litlu hlutina stóra.

Bryndís var hrein og bein, en alltaf með hjartað á réttum stað. Hún hafði drifkraft sem smitaði út frá sér og var óhrædd við að standa með því sem hún trúði á. Hún var baráttukona sem barðist fyrir skólanum sínum af einurð og ástríðu. Það veitti henni mikla ánægju síðustu árin að við værum að eignast nýjan og betri Myllubakkaskóla, eftir langa baráttu sem hún átti stóran þátt í.

Eitt dæmi sem lýsir henni vel er þegar hún stakk upp á því að starfsfólk myndi greiða 100 krónur fyrir hvern klukkutíma sem það ferðaðist með flugi erlendis í stað þess að kaupa nammi á kaffistofuna. Fyrir þá peninga skyldu gróðursett tré til að jafna kolefnissporið. Þarna sameinaðist hugsjón, ábyrgð og sköpun í einni einfaldri en áhrifaríkri hugmynd.

Minningin um Bryndísi lifir í öllu því sem hún lagði af mörkum. Hún lifir í börnunum sem hún styrkti, í starfsfólkinu sem hún studdi og í skólasamfélaginu sem hún mótaði með hlýju, festu og kærleika.

Bryndís var hvetjandi, ástríðufull, fagurkeri og fyrirmynd. Fyrst og fremst var hún manneskja sem lét öðrum líða vel og hennar verður sárt saknað.

Blessuð sé minning elsku Bryndísar okkar.

 

Starfsfólk Myllubakkaskóla

Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli
Hnetulaus

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Foreldrafélag Myllubakkaskóla
  • FFGÍR
  • Reykjanesbær - Menntastefna
  • Reykjanesbær