• Skrifstofan er opin frá:

    Mán - fim: 7:45 - 15:30
    Fös: 7:45 - 14:00

  • Sími á skrifstofu

    420 1450

27. apríl 2026

Minning - Bryndís Björg Guðmundsdóttir

Minning - Bryndís Björg Guðmundsdóttir

Bryndís Björg Guðmundsdóttir, fyrrum skólastjóri Myllubakkaskóla, er látin eftir erfið veikindi. Með fráfalli hennar kveðjum við einstaka skólakonu sem helgaði starfsævi sína menntun og uppeldi barna í yfir þrjá áratugi.

Bryndís starfaði sem skólastjóri Myllubakkaskóla frá haustinu 2014 þar til hún þurfti að láta af störfum vegna veikinda. Þrátt fyrir að starfstími hennar sem skólastjóri hafi ekki verið eins langur og vonir stóðu til voru áhrif hennar djúpstæð. Hún mótaði starf og menningu skólans og hafði jákvæð áhrif á nemendur, foreldra og samstarfsfólk.

Tengsl Bryndísar við Myllubakkaskóla ná þó mun lengra aftur, því hún hóf sinn kennsluferil þar skólaárið 1996–1997. Það má því segja að hún hafi snúið aftur á sinn fyrsta starfsvettvang með reynslu og sýn sem hún nýtti til að efla skólann enn frekar.

Bryndís var sterkur leiðtogi með skýra sýn. Hún hafði ákveðnar skoðanir á málefnum sem henni voru hugleikin og nálgaðist störf sín af fagmennsku, yfirvegun og virðingu. Hún hafði einstakt lag á að sameina fólk og skapa heild úr ólíkum sjónarmiðum. Hlýja hennar og umhyggja einkenndu samskipti hennar ásamt festu og skipulagi í starfi.

Hún bar mikla ást til skólans og var óþreytandi talsmaður hans. Hún talaði af stolti um nemendur, starfsfólk og starfshætti skólans og smitaði aðra af eldmóði sínum.

Við sem fengum að kynnast henni minnumst hennar sem mikils fagurkera sem hugsaði vel um fólkið sitt. Hún bar mikla ástríðu til lífsins og vildi koma henni áleiðis til annarra. Hún var mikill sælkeri og naut samstarfsfólk hennar góðs af því. Hún deildi oft dýrindis konfekti, kóki í gleri, Appelsíni og lakkrísrörum, snúðum, kökum og fleiru á kaffistofunni.

Fjölskylda hennar var henni ótrúlega mikilvæg og skipaði stóran sess í lífi hennar. Hún naut samveru með sínum nánustu og lagði sig fram um að rækta tengsl við þau. Sama hlýja og samheldni einkenndi hennar nálgun innan skólans þar sem hún styrkti „Myllufjölskylduna" og lagði sitt af mörkum við að gera hana að sterkri heild.

Við minnumst Bryndísar með þakklæti, ást og virðingu og sendum fjölskyldu hennar okkar innilegustu samúðarkveðjur.

Hvíl í friði Bryndís. Þú munt lifa áfram í Mylluhjörtum okkar.

Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli
Hnetulaus

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Foreldrafélag Myllubakkaskóla
  • FFGÍR
  • Reykjanesbær - Menntastefna
  • Reykjanesbær