Halla Björk í 2. sæti í Stóru upplestrarkeppninni
Lokakeppni Stóru upplestrarkeppninnar í Reykjanesbæ fór fram í Hljómahöll 10. mars síðast liðinn. Keppendur voru fjórtán, tveir frá hverjum skólanna sjö í Reykjanesbæ.
Fulltrúar Myllubakkaskóla voru þær Halla Björk Guðjónsdóttir og Hugrún Helgadóttir. Þær stóðu sig frábærlega og hlaut Halla Björk 2. sætið. Í þriðja sæti var Hilmar Geir Geirsson og í fyrsta sæti var Birkir Frosti Kjartansson, báðir nemendur í Holtaskóla.
Halla Björg og Hugrún stóðu sig mjög vel og sýndu mikið öryggi enda búnar að vera duglegar að æfa sig.
Natalía Dziondziakowska nemandi í 7. bekk í Myllubakkaskóla las ljóð á pólsku og Kristjana Nótt Guðrúnardóttir í 8. bekk í Myllubakkaskóla og verðlaunahafi keppninnar frá í fyrra kynnti ljóðskáld hátíðarinnar í ár.
Stóra upplestrarkeppnin fagnar 30 ára afmæli í ár og er fyrir löngu orðin stór og mikilvægur hluti af skólastarfi flestra skóla. Mikil vinna liggur að baki vel æfðum upplestri og er markmið keppninnar fyrst og fremst að vekja athygli á vönduðum upplestri og framburði.


Hugrún Helgadóttir Halla Björk Guðjónsdóttir
Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.



