Árshátíð
Árshátíð Myllubakkaskóla verður haldin á morgun, föstudaginn 20. mars, í Íþróttahúsinu við Sunnubraut og hefst kl. 12:30. Húsið opnar kl. 12:10 fyrir gesti.
Þennan dag er engin kennsla og lokað í frístundaskólanum.
Nemendur í 3. – 10. bekk mæta á æfingar um morguninn, upplýsingar um það koma frá umsjónarkennurum.
Foreldrar/forráðamenn og aðrir aðstandendur eru hjartanlega velkomnir.
Eftir sýningu, sem tekur rúma klukkustund, er boðið upp á kaffi, djús og köku í B-sal íþróttahússins.
Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.



