Ævar Þór i heimsókn
Rithöfundurinn Ævar Þór kom í heimsókn í Myllubakkaskóla í síðustu viku og las fyrir nemendur í 4.–7. bekk. Hann kynnti nýju bókina sína, Teiknimyndaránið, sem kemur út í lok október. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Ævar Þór heimsækir okkur en hann hefur verið reglulegur gestur í skólanum í um áratug. Á síðasta skólaári las hann úr bókinni Skólastjórinn og sagði nemendum frá hugmyndinni að baki henni.
Sagan sem hann kynnti að þessu sinni fjallar um vinina Halla og Tóta sem gera allt saman. Þegar Tóti tilkynnir að hann ætli að flytja til Svíþjóðar sumarið eftir að þeir ljúka 7. bekk breytist allt. Ævar Þór sýndi nemendum einnig bókina, sem er fallega myndskreytt af Rán Flygenring.
Gaman er að segja frá því að nemendur eru alltaf áhugasamir og kurteisir þegar Ævar Þór kemur og kynnir bækur sínar.
Við þökkum Ævari Þór kærlega fyrir heimsóknina.
Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.



