• Skrifstofan er opin frá:

    Mán - fim: 7:45 - 15:30
    Fös: 7:45 - 14:00

  • Sími á skrifstofu

    420 1450

18. október 2023

Vetrarfrí og kvennaverkfall

Föstudaginn 20. október og mánudaginn 23. október er vetrarfrí og verður skólinn og frístund lokuð þann dag.

Þriðjudaginn 24. október hafa á fjórða tug samtaka kvenna, hinsegin fólks og launafólks blásið til heils dags kvennaverkfalls. Þann dag munu konur og kvár sem það kjósa leggja niður störf.

Kvennaverkfallið er baráttudagur fyrir jafnrétti á vinnumarkaði og tekur launafólk þátt á eigin forsendum og samkvæmt eigin ákvörðun en þó í samráði við sína stjórnendur.

Konur í Myllubakkaskóla sem eru kennarar og stuðningsfulltrúar hafa tilkynnt okkur stjórnendum skólans að það ætli að leggja niður störf þennan dag. Við gerum einnig ráð fyrir að einhverjir karlmenn sem eiga ung börn verði frá vinnu þennan dag vegna lokunar á leikskólum.

Skólastarf fyrir 1. - 6. bekk fellur niður og frístundastarf í Myllubakkaskóla fellur einnig niður þriðjudaginn 24. október þar sem við getum ekki sinnt kennslu né gæslu þann dag.

Nemendur í 7. - 10. bekk mæta í skólann samkvæmt stundatöflu en þá í sínar heimastofur (ekki sund í fyrsta tíma). Nemendur fylgja stundatöflu þennan dag til hádegis (7. bekkur kl. 11:50 og 8. - 10. bekkur kl. 12:00). Það verður ekki boðið uppá hádegismat þennan dag.

Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli
Hnetulaus

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Foreldrafélag Myllubakkaskóla
  • FFGÍR
  • Reykjanesbær - Menntastefna
  • Reykjanesbær