Þorrablót FFM - fimmtudaginn 6. febrúar
Fimmtudaginn 6. febrúar, milli kl.18:30 og 20:00 verður Þorrablót FFM haldið í matsal Myllubakkaskóla.
Við tengjum upphafið að því að fagna Þorra við víkinga og því höfum við fengið sem skemmtiatriði og til fróðleiks víkinga sem sérhæfa sig í að kynna líf víkinga forðum. Þeir sýna vopn og verjur og líka bardaga.
Skólamatur býður upp á Þorrasmakk, sérvaldar kræsingar af þorramat fyrir gesti til að smakka á.
Frítt inn og allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.
Hlökkum til að sjá ykkur öll,
Stjórn foreldrafélags Myllubakkaskóla
Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.