Skákgleði í Myllubakkaskóla
Fimmtudaginn 12. febrúar var haldið skákmót fyrir nemendur á mið- og unglingastigi í Myllubakkaskóla. Alls tóku 54 nemendur þátt, 30 á miðstigi og 24 á unglingastigi.
Keppnin var spennandi og ríkti góð stemning í salnum þar sem nemendur tefldu af einbeitingu og sýndu jafnframt mikinn metnað.
Sigurður Ingimundarson og Jóhann Steinarsson höfðu umsjón með mótinu og sáu til þess að allt færi vel fram.
Sigurvegarar voru eftirfarandi:
Miðstig
- sæti: Elvar Þór Sigurðsson í 7. bekk
- sæti: Júlíana G. Marie Pétursdóttir í 6. bekk
- sæti: Emil Kristinsson í 5. bekk
- sæti: Kolfinnur Skuggi Ævarsson í 7. bekk

Unglingastig
- sæti: Jóhann Brimir Ragnarsson í 9. bekk
- sæti: Marvin Baako Ahumah Katey í 8. bekk
- sæti: Edzus Gunis Griscuks í 8. bekk
- sæti: Aleks Bochniak í 9. bekk

Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.



