Samfélagslögreglan og Fjörheimar í heimsókn til Myllubakkaskóla

Í gær fengu nemendur á unglingastigi skólans kynningu frá samfélagslögreglunni. Fulltrúar lögreglunnar kynntu hlutverk sitt á Ljósanótt og ræddu mikilvægi þess að tryggja öryggi allra yfir hátíðina.
Nemendur fengu jafnframt kynningu frá félagsmiðstöðinni Fjörheimum þar sem kynntur var Fjör flotinn, en hann verður á ferðinni á Ljósanótt.
Við í Myllubakkaskóla þökkum bæði samfélagslögreglunni og Fjörheimum kærlega fyrir heimsóknina.
Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.