Mylluvísjón 2025

Í síðustu viku fór söngkeppnin Mylluvísjón fram í Frumleikhúsinu.Keppnin er fyrir nemendur í 3. til 10. bekk og voru keppendur alls 33 í 26 atriðum, ýmist í sólóflutningi eða fleiri saman.
Til að halda svona viðburð koma margir að, bæði starfsfólk Myllubakkaskóla og aðrir velunnarar skólans. Halla Karen Guðjónsdóttir var kynnir og færir skólinn henni þakkir fyrir að stýra keppninni með léttleika en hún hélt áhorfendum við efnið mili atriða. Jafnframt langar okkur að þakka dómurum keppninnar, þeim Freydísi Kneif, Rósu Ragúels og Þórarni Darra fyrir þeirra framlag, þau fengu það erfiða verkefni að velja sigurvegara úr mörgum frábærum atriðum.
Úrslit keppninnar voru eftirfarandi:
Yngra stig (3.–5. bekkur)
🥇 1. sæti – Inga Sóllilja Arnarsdóttir, 4. bekk.
🥈 2. sæti – Weronika Wyroslak, 5. bekk.
🥉 3. sæti – María Rán Amadin Maríudóttir, Guðrún Jónína Guðbjörnsdóttir og Rakel Ruth Jankovic, 3. bekk.
Eldra stig (6.–10. bekkur):
🥇 1. sæti – Stefania Boakyewaa Kyeremateng, 8. bekk.
🥈 2. sæti – Ástrós Tekla Jóhannsdóttir, 6. bekk og Hrafntinna Björk Ævarsdóttir, 5. bekk.
🥉 3. sæti – Heiðdís Tómasdóttir, 6. bekk.
Skólinn óskum öllum keppendum innilega til hamingju og þakkar fyrir góða skemmtun.
Við hlökkum til að halda Mylluvísjón á næsta ári og hvetjum alla til að halda áfram að syngja, æfa og njóta tónlistar.
Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.