Boðberar kærleikans skinu skært
Nemendur úr 1. og 2. bekk Myllubakkaskóla tóku þátt í lokahátíð verkefnisins Leikgleði, sem haldin var í Hljómahöll miðvikudaginn 15. maí. Á hátíðinni komu saman nemendur úr öllum grunnskólum Reykjanesbæjar og sýndu afrakstur vetrarins.
Leikgleði er verkefni sem miðar að því að efla málörvun, sköpunargleði og sjálfstraust barna í gegnum leik, sögugerð og tjáningu.
Nemendur Myllubakkaskóla mættu á lokahátíðina og sungu lagið „Skínum skært“, sem var lokalagið í Krakkaskaupinu árið 2024. Lagið var sérstaklega tileinkað Bryndísi Klöru, ungri hetju sem lést á síðasta ári. Til heiðurs Bryndísi voru allir nemendur í bleikum bolum, uppáhaldslit hennar. Bleiku bolirnir voru fengnir að láni hjá Krabbameinsfélagi Suðurnesja og þökkum við þeim innilega fyrir.
Lokahátíðin var fjölbreytt, börn úr öllum skólum Reykjanesbæjar komu fram, sýndu ýmist leikrit, tónlist eða sögur sem þau höfðu sjálf skapað. Nemendur í Myllubakkaskóla stóðu sig einstaklega vel og voru skólanum okkar til sóma.
Myndir frá hátíðinni eru á myndasíðu skólans.
Nánari umfjöllun um viðburðinn má finna á heimasíðu Víkurfrétta.
Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.