100 daga hátíð hjá 1. bekk
Í lok síðustu viku fögnuðu nemendur í 1. bekk þeim áfanga að hafa verið í 100 daga í Myllubakkaskóla. Umsjónarkennararnir Anna María og Tinna höfðu lögðu mikinn metnað í undirbúning hátíðarinnar, með fallegum skreytingum, blöðrum og skemmtilegum leikjum sem gerðu daginn eftirminnilegan. Dæmi um verkefni þennan dag var að telja 100 bita af ýmsu góðgæti og vakti það mikla lukku.
Nemendur gengu stoltir um ganga skólans með 100 daga kórónur og var hátíðleg stund þegar þeim var fagnað af eldri nemendum sem klöppuðu fyrir þeim yngri.
Við erum auðvitað stolt af því hve vel nemendur í 1. bekk hafa aðlagast að skólastarfinu í Myllubakkaskóla.
Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.



