Úrslit í fótboltamóti 4.- 6. bekk
Þriðjudaginn 7. október var haldið fótboltamót fyrir nemendur í 4. - 6. bekk. Nemendur röðuðu sér sjálfir í lið og skráðu sig til leiks. Þrjú lið tóku þátt í mótinu. Keppnisskapið skein úr hverju andliti og allir voru einbeittir og glaðlyndir í blíðskaparveðri sem sjaldan sést á þessum árstíma. Eftir að öllum leikjum var lokið stóð liðið KefCity uppi sem sigurvegari mótsins.
Fleiri myndir eru í myndasafni.
Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.