• Skrifstofan er opin frá:

    Mán - fim: 7:45 - 15:30
    Fös: 7:45 - 14:00

  • Sími á skrifstofu

    420 1450

28. nóvember 2017

Þorgrímur Þráinsson með fyrirlestur fyrir foreldra

FFGÍR Foreldrafélög grunnskólanna í Reykjanesbæ bjóða öllum foreldrum á fyrirlestur með Þorgrími Þráinssyni þriðjudaginn 28.nóvember kl:18-19 í Íþróttakademíunni.
Þorgrímur Þráinsson kynnir fyrirlestrana sem hann heldur fyrir nemendur í vetur. Annars vegar Verum ástfangin af lífinu sem er fyrir nemendur í 10. Bekk og hins vegar Vertu hetjan í þínu lífi - með því að hjálpa öðrum, sem er stílaður inn á miðstig. Í báðum fyrirlestrunum hvetur Þorgrímur nemendur til að bera ábyrgð á sjálfum sér, hjálpa öðrum og vanda sig í öllu sem þeir taka sér fyrir hendur. Hann notar fjölda fyrirmynda, sem eru algjörlega til fyrirmyndar og nemendur geta lært af. ,,Litlir hlutir skapa stóra sigra" er rauði þráðurinn sem og samkennd og vinátta. Fyrirlesturinn byggist á myndum, myndböndum og eftirminnilegum sönnum sögum. Þorgrímur talar ennfremur um sterka liðsheild og segir frá því hvað við getum lært af landsliðinu í fótbolta en hann hefur starfað með liðinu í 10 ár.
Allir foreldrar velkomnir

Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli
Hnetulaus

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Foreldrafélag Myllubakkaskóla
  • FFGÍR
  • Reykjanesbær - Menntastefna
  • Reykjanesbær