Stóra upplestrarkeppnin í Myllubakkaskóla
Í morgun tóku sjö nemendur úr 7. bekk þátt í skólakeppni Stóru upplestrarkeppninnar. Keppendur stóðu sig með miklum ágætum, voru öruggir og fóru vel eftir þeim leiðbeiningum sem gefnar voru. Á endanum voru það þær Moira Ruth W Van Gooswilligen og Saga Eysteinsdóttir sem þóttu bera af í annars mjög góðum hópi lesara. Þessar stúlkur verða fulltrúar Myllubakkaskóla á lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar sem fram fer í Duus húsum fimmtudaginn 7. mars kl. 16:30. Til hamingju krakkar.
Moira og Saga
Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.