Stóra upplestrarkeppnin
24. mars sl. voru samankomnir 13 fulltrúar allra skóla í Reykjanesbæ og úr grunnskólanum í Sandgerði til að taka þátt í Stóru upplestrarkeppninni. Það var augljóst að nemendur höfðu æft sig vel og var unun að njóta þess að hlusta á góðan upplestur.
Herdís Birta Sölvadóttir og Sonja Bjarney Róbertsdóttir Fisher voru fulltrúar Myllubakkaskóla stóðu sig mjög vel og vill skólinn þakka þeim fyrir frábæra vinnu.
Sigurvegari keppninnar var Birgitta Rós Ásgrímsdóttir úr Holtaskóla, í 2. sæti var Olga Nanna Corvetto úr Akurskóla og í 3. sæti var Erna Rós Agnarsdóttir úr Holtaskóla. Við óskum öllum þátttakendum til hamingju með góða frammistöðu.
![]() |
Sonja Bjarney og Herdís Birta |
Fleiri myndir í myndasafninu.
Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.