Stærðfræðikeppni grunnskólanna í 8. - 10. bekk
Verðlaunaafhending í Stærðfræðikeppni grunnskóla á Suðurnesjum fór fram mánudaginn 16. apríl sl. í Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Tuttugu nemendur úr Myllubakkaskóla tóku þátt, sjö nemendur voru meðal 10 efstu í öllum þremur árgöngunum og fjórir náðu verðlaunasæti. Aron Daniel W Van Gooswilligen var í 1. sæti í 8. bekk. Í 9. bekk var Sigurður Galdur Loftsson í 2. sæti og Rannveig Ósk Smáradóttir í 3. – 4. sæti. Margrét Dagmar Loftsdóttir var í 1. sæti hjá 10. bekkingum. Við óskum nemendum til hamingju með frábæran árangur.
Jóhann, Margrét Dagmar, Sigurður Galdur, Stefán Ingi,
Bragi, Aron Daniel, Helena Rós og Rannveig.
Fleiri myndir í myndasafni.
Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.