Stærðfræðikeppni grunnskólanna
Stærðfræðikeppni grunnskólanema fór fram í Fjölbrautaskóla Suðurnesja 27. febrúar s.l. Þátttakendur voru 112 nemendur í 8. - 10. bekk úr öllum grunnskólum á Suðurnesjum. Verðlaunaafhending fór fram á sal skólans 11. mars s.l. Þar mættu 10 efstu í hverjum árgangi ásamt foreldrum, stærðfræðikennurum og stjórnendum grunnskólanna. Allir sem voru boðaðir fengu viðurkenningarskjal.
Það voru 9 keppendur í tíu efstu sætunum sem komu frá Myllubakkaskóla.
Í 10. bekk var Hjörtur Máni Skúlason í 1. sæti, Klaudia Kuleszewicz í 3. sæti, Guðjón Steinn Skúlason í 4. sæti, Gabriela Beben í 5. sæti og Friðrik Ingi Hilmarsson í 6.-11. sæti.
Í 9. bekk var Agata Hirsz í 4. - 5. sæti, Leó Máni Quyen Nguyén og Rugilé Milleryte í 6. - 10. sæti.
Í 8. bekk var Birgir Logi Birgisson í 6. - 10. sæti.
Við óskum þeim öllum til hamingju með árangurinn.
Frétt og fleiri myndir má sjá á heimasíðu Fjölbrautaskóla Suðurnesja.

Fremri röð fv: Gabriela, Klaudia, Hjörtur Máni og Leó Máni
Á myndina vantar Guðjón Stein
Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.