• Skrifstofan er opin frá:

    Mán - fim: 7:45 - 15:30
    Fös: 7:45 - 14:00

  • Sími á skrifstofu

    420 1450

18. mars 2019

Stærðfræðikeppni grunnskólanna

Stærðfræðikeppni grunnskólanema fór fram í Fjölbrautaskóla Suðurnesja 19. febrúar s.l. Þátttakendur voru 137 úr 8. - 10. bekk úr öllum grunnskólum á Suðurnesjum. Verðlaunaafhending fór svo fram á sal skólans 7. mars s.l. Þar mættu 10 efstu í hverjum árgangi ásamt foreldrum, stærðfræðikennurum og stjórnendum grunnskólanna. Allir sem voru boðaðir fengu viðurkenningarskjal.

Það voru 7 keppendur í tíu efstu sætunum sem komu frá Myllubakkaskóla.
Alexander Viðar Garðarsson í 10. bekk var  í 1. sæti.
Í 9. bekk voru Friðrik Ingi Hilmarsson, Hjörtur Máni Skúlason og Klaudia Kuleszewicz í 6. - 10. sæti.
Í 8. bekk var Ísak Helgi Jensson í 3. sæti, Agata Bernadeta Hirsz var í 5. - 6. sæti og Rugilé Milleryte í 7. - 10. sæti.

Við óskum þeim öllum til hamingju með árangurinn.
Fleiri myndir má sjá á heimasíðu Fjölbrautaskóla Suðurnesja.

Frá vinstri: Agata, Rugilé, Klaudia, Hjörtur Máni,
Friðrik Ingi, Ísak Helgi og Alexander Viðar.
Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli
Hnetulaus

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Foreldrafélag Myllubakkaskóla
  • FFGÍR
  • Reykjanesbær - Menntastefna
  • Reykjanesbær