Stærðfræðikeppni grunnskólanna
Stærðfræðikeppni grunnskólanema fór fram í Fjölbrautaskóla Suðurnesja 12. mars s.l. Þátttakendur voru 148 úr 8. - 10. bekk úr öllum grunnskólum á Suðurnesjum. Verðlaunaafhending fór svo fram á sal skólans 9. apríl s.l. Þar mættu 10 efstu í hverjum árgangi ásamt foreldrum, stærðfræðikennurum og stjórnendum grunnskólanna. Allir sem voru boðaðir fengu viðurkenningarskjal.
Það voru 8 keppendur í tíu efstu sætunum sem komu frá Myllubakkaskóla. Í 8. bekk var Klaudia Kuleszewicz í 1. sæti, Hjörtur Máni Skúlason í 2. sæti, Gyða Dröfn Davíðsdóttir í 4. sæti, Friðrik Ingi Hilmarsson og Gabriela Beben voru í 7.-10. sæti.
Í 9. bekk voru Bergrún Dögg Bjarnadóttir og Bjarni Hrafn Hermannsson í 7.-10. sæti.
Í 10. bekk var Borgar Unnbjörn Ólafsson 6. - 11. sæti
Við óskum þeim öllum til hamingju með árangurinn.
Fleiri myndir má sjá á heimasíðu Fjölbrautaskóla Suðurnesja.
![]() |
Frá vinstri: Gabriela, Bjarni, Gyða, Klaudia, Borgar, Hjörtur og Friðrik. Á myndina vantar Bergrúnu Dögg |
![]() |
Nemendurnir í 8. bekk með stærðfræðikennurum sínum. |
![]() |
9. bekkur, 4.-10. sæti. |
![]() |
10. bekkur, 7.-11. sæti |
Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.