• Skrifstofan er opin frá:

    Mán - fim: 7:45 - 15:30
    Fös: 7:45 - 14:00

  • Sími á skrifstofu

    420 1450

1. apríl 2016

Stærðfræðikeppni grunnskólanemenda

Stærðfræðikeppni grunnskólanema fór fram í Fjölbrautaskóla Suðurnesja 8. mars s.l. Þátttakendur voru 134 úr 8. - 10. bekk úr öllum grunnskólum á Suðurnesjum. Verðlaunaafhending fór svo fram á sal skólans í gær. Þar mættu 10 efstu í hverjum árgangi ásamt foreldrum, stærðfræðikennurum og stjórnendum grunnskólanna. Allir sem voru boðaðir fengu viðurkenningarskjal.
Það voru 7 keppendur sem komu frá Myllubakkaskóla að þessu sinni.  Í 9. bekk var Marcelina Owczarska í 3. sæti.  Í 6.-10. sæti urðu Eva Maria Piras, Júlía Mjöll Jensdóttir, Margrét Ír Jónsdóttir og Marteinn Guðmundsson.
Í 10. bekk var Milosz Wyderski 4. - 5. sæti og Daniel Jose 6. - 10. sæti

Við óskum þeim öllum til hamingju með árangurinn.

Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli
Hnetulaus

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Foreldrafélag Myllubakkaskóla
  • FFGÍR
  • Reykjanesbær - Menntastefna
  • Reykjanesbær