Stærðfræðikeppni grunnskólanema
Stærðfræðikeppni grunnskólanema fór fram í Fjölbrautaskóla Suðurnesja 11. mars s.l. Þátttakendur voru 149 úr 8. - 10. bekk úr öllum grunnskólum á Suðurnesjum. Nemendur fengu pizzu og gos áður en keppnin hófst. Verðlaunaafhending fór síðan fram á sal skólans miðvikudaginn 23. apríl s.l. Þar mættu 10 efstu í hverjum árgangi ásamt foreldrum, stærðfræðikennurum og stjórnendum grunnskólanna. Allir sem voru boðaðir fengu viðurkenningarskjal.
Að þessu sinni áttum við einn vinningshafa en það var hann Milosz Wyderski í 8. bekk. Hann lenti í 2. sæti.
![]() |
Milosz er þriðji frá vinstri í fremstu röð. |
Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.