• Skrifstofan er opin frá:

    Mán - fim: 7:45 - 15:30
    Fös: 7:45 - 14:00

  • Sími á skrifstofu

    420 1450

31. mars 2021

Skólinn hefst 7. apríl

Skólinn hefst eftir páskafrí miðvikudaginn 7. apríl samkvæmt stundaskrá. Skipulagið frá 7. apríl til og með 15. apríl byggir á reglugerð um takmörkun á skólastarfi.

Í grunninn byggist skipulagið á eftirfarandi þáttum með einstaka undantekningum:

  • Nemendur í 1.-10. bekk fá kennslu samkvæmt stundaskrá. En samkvæmt reglugerð eru þeir undanþegnir 2 metra nálægðartakmörkun sem og grímuskyldu. Ekki skulu vera fleiri en 50 nemendur í 1.-10. bekk í hverju rými. Blöndun milli hópa innan skóla er heimil.
  • 20 starfsmenn mega vera saman í rými og þeim er heimilt að fara á milli hópa. Sé starfsfólki ekki unnt að tryggja 2 metra nálægðartakmörkun sín á milli og gagnvart nemendum ber þeim að nota andlitsgrímur. Sömu reglur gilda um starfsfólk skólaþjónustu og tónlistarskóla.
  • Frístundaheimilin verða opin til kl. 16:15.
  • Í sameiginlegum rýmum skóla, svo sem í matsal, við innganga, í anddyri, á salerni og göngum, er heimilt að víkja frá fjöldatakmörkun og reglu um blöndun hópa að því gefnu að starfsfólk notist við andlitsgrímu.
  • Viðburðir tengdir starfi eða félagslífi grunnskóla, svo sem fyrirlestrar, upplestrarkeppnir o.fl., eru óheimilar fyrir aðra en nemendur og starfsfólk.
  • Foreldrar og aðstandendur skulu almennt ekki koma inn í skólabyggingar nema nauðsyn beri til. Stjórnendum grunnskóla er heimilt að krefja foreldra, þurfi þeir að koma inn í skólabyggingu, um að nota andlitsgrímur.
  • Aðrir en starfsmenn sem koma inn í grunnskóla, svo sem vegna vöruflutninga skulu bera andlitsgrímur og gæta sóttvarnaráðstafana.

    Við hvetjum alla til þess að gæta að persónulegum smitvörnum, minnum á mikilvægi handþvottar og notkun spritts. Við erum í þessu saman.


    Kær páskakveðja

Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli
Hnetulaus

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Foreldrafélag Myllubakkaskóla
  • FFGÍR
  • Reykjanesbær - Menntastefna
  • Reykjanesbær