Skólahreysti
Á morgun, fimmtudaginn 19. mars kl. 16:00 - 18:00 fer fram keppni í Skólahreysti í Íþróttahúsinu við Sunnubraut. Það verða þau Arnór Máni, Bjarndís Sól, Ísak Óli úr 9. bekk og Ingunn Eva 10. bekk sem keppa fyrir hönd skólans.
Við viljum hvetja nemendur í 6. - 10. bekk til að mæta í rauðu og skapa góða stemningu með okkur á pöllunum.
Það verður boðið upp á andlitsmálningu kl. 14:00 í félagsaðstöðunni og ætlum við svo að marsera saman á Sunnubrautina rétt fyrir kl. 15:00 því húsið opnar kl. 15:00.
Vonumst til að sjá sem flesta : )
Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.