Skólahreysti - rútuferð
Lið Myllubakkaskóla keppir í skólahreysti miðvikudaginn 26. mars. Keppnin fer fram í Smáranum, Kópavogi kl. 19:00.
Nemendur í 7. - 10. bekk geta farið með rútu frá Myllubakkaskóla.
Mæting er í skólann kl. 17:30 og kostar 500 kr í rútuna. Borga þarf hjá ritara í dag eða á morgun (þriðjudag).
Áætlaður heimkomutími er um 22:00-22:30.
Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.