• Skrifstofan er opin frá:

    Mán - fim: 7:45 - 15:30
    Fös: 7:45 - 14:00

  • Sími á skrifstofu

    420 1450

14. maí 2014

Skákmót Barnahátíðarinnar

Skákmót Barnahátíðarinnar er að festa sig í sessi og fór fram í annað sinn laugardaginn 10. maí síðastliðinn í Toyotahöllinni. Keppt var í tveimur flokkum, yngri flokki sem var 4. - 7. bekkur og eldri flokki sem var 8. – 10. bekkur.

Í yngri flokknum mættu nokkrir til leiks og var hart barist og fór svo að eftir að allar skákir höfðu verið tefldar þá voru tveir jafnir í efsta sæti. Þá þurfti eina úrslitaskák, til úrslita kepptu tveir fjórðu bekkingar, Agnar Sveinsson úr Holtaskóla og Oliver Andri Einarsson úr Heiðaskóla. Eftir jafna skák hafði Agnar sigur úr býtum og fagnaði ógurlega í leikslok. Agnar átti sigurinn fyllilega skilið og hafði sýnt fín tilþrif á mótinu. Í þriðja sæti lenti Birta Ruth Bjarnadóttir 5. bekk í Háaleitisskóla.

Agnar, Óliver Andri og Birta Ruth.

Keppni í eldri flokknum tók lengri tíma og voru keppendur að vanda sig og tóku minni áhættu en þeir yngri, en þrátt fyrir það var mikið um spennandi skákir. Þó bar einn keppandi af á meðal jafningja sinna, Gísli Freyr Pálmason í 9. bekk í Myllubakkaskóla fór í gegnum mótið taplaus. Gísli sigraði allar sínar skákir nokkuð örugglega. Í öðru sæti lenti Jón Kristján Harðarson í 8. bekk í Holtaskóla, í því þriðja var Karl Dúi Hermannsson í 8. bekk í Myllubakkaskóla og í fjórða sæti kom Ingólfur Bjarnason í 8. bekk í Njarðvíkurskóla.

Gísli Freyr Pálmason
Ingólfur, Gísli Freyr, Jón Kristján og Karl Dúi.

     

Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli
Hnetulaus

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Foreldrafélag Myllubakkaskóla
  • FFGÍR
  • Reykjanesbær - Menntastefna
  • Reykjanesbær