Rauðir unnu
Dagana 8. - 11. apríl var PBS litavika. Öllum nemendum skólans er skipt í litahópa þ.e. gulir, rauðir, grænir og bláir og í stað hefðbundinna býta voru notuð páskabýti. Nemendur reyna svo að safna býtum fyrir sinn hóp og í lokin eru þau talin og þá kemur í ljós hvaða hópur var duglegastur að safna býtum. Í þetta sinn var það rauði hópurinn sem vann og í dag fengu þau að horfa á stuttan þátt í matsal skólans og gæddu sér á svala og skúffuköku á meðan.
Sjá má myndir í myndasafni.
Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.