Óvissuferð í 10. bekk
Föstudaginn 6. febrúar fóru 10. bekkingar í óvissuferð í Sundmiðstöð Reykjanesbæjar ekki var þó ætlunin að skella sér í sund.
Theodór Kjartansson tók á móti þeim fyrir hönd Skotdeildar Keflavíkur. Hann fór yfir öryggisreglur um meðferð skotvopna og síðan fengu nemendur að skjóta á mark með loftrifflum og kom þá í ljós að góðar skyttur leyndust í hópnum. Allir skemmtu sér konunglega.
Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.