Opinn dagur tókst vel
Mikið var um að vera á opnum degi í Myllubakkaskóla. Um morguninn fór fram kynning á íþróttum í íþróttahúsinu fyrir 1. - 7. bekk, nemendur í 8. - 10. bekk fóru í ýmsa leiki í félagsaðstöðu.
Afrakstur þemadaga var til sýnis víðs vegar um skólann, lifandi tónlist ómaði, hörku bréfskutlukeppni var í íþróttahúsinu og einnig fór fram skákkeppni á sal. Fjöldi gesta kom í heimsókn og var dagurinn mjög skemmtilegur.
Fullt af myndum á myndasvæðinu.
Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.