• Skrifstofan er opin frá:

    Mán - fim: 7:45 - 15:30
    Fös: 7:45 - 14:00

  • Sími á skrifstofu

    420 1450

11. nóvember 2013

Norræna bókasafnsvikan

Í dag hófst Norræna bókasafnsvikan en hún er haldin hátíðleg í 17. sinn. Þá setjumst við niður og lesum upphátt sama bókmenntatexta á sama tíma á öllum Norðurlöndunum. Vikan er sneisafull af upplestrum, sýningum og umræðum á menningardagskrám á þúsunum bókasafna, skóla og annarra samkomustaða á öllum Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum. Þema ársins er vetur á Norðurlöndunum.  Líkt og undanfarin ár tökum við hér í Myllubakkaskóla þátt. Við áttum hugljúfa stund í skólanum í morgun þar sem við slökktum rafljósin, kveiktum á kertum og kennarar lásu fyrir nemendur við kertaljós. Við það skapaðist notaleg stemming.

Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli
Hnetulaus

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Foreldrafélag Myllubakkaskóla
  • FFGÍR
  • Reykjanesbær - Menntastefna
  • Reykjanesbær