• Skrifstofan er opin frá:

    Mán - fim: 7:45 - 15:30
    Fös: 7:45 - 14:00

  • Sími á skrifstofu

    420 1450

12. nóvember 2012

Norræna bókasafnsvikan

Í dag hófst Norræna bókasafnsvikan en hún er haldin hátíðleg í 16. sinn. Þema ársins er Margbreytileiki á Norðurlöndunum. Norræna bókasafnavikan er haldin til að kasta birtu á norræna frásagnahefð og bókmenntir. Í heila viku er boðið upp á upplestra, sýningar, umræður og aðra menningaratburði á þúsundum bókasafna, skóla og samkomustaða um öll Norðurlöndin og Eystrasaltið. Líkt og undanfarin ár tökum við hér í Myllubakkaskóla þátt. Við áttum hugljúfa stund í skólanum í morgun þar sem við slökktum rafljósin, kveiktum á kertum og kennarar lásu fyrir nemendur við kertaljós. Við það skapaðist notaleg stemming.

                                                           

Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli
Hnetulaus

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Foreldrafélag Myllubakkaskóla
  • FFGÍR
  • Reykjanesbær - Menntastefna
  • Reykjanesbær