Mylluvísjón úrslit
Söngkeppnin Mylluvísjón fór fram í gær. Flutt voru 18 atriði og voru 25 þátttakendur sem tóku þátt og stóðu sig allir með mikilli prýði. Í yngri flokki (3. - 6. bekkur) var það Bryndís Björk sem bar sigur úr býtum. Anika og Guðný Kristín urðu í 2. sæti og Aðalbjörg í því þriðja. Þær eru allar í 3. bekk. Í eldri flokki (7. - 10. bekk) sigraði Herdís Birta í 9. bekk, í öðru sæti var Sæþór Elí 7. ÍH og Stefanía Sólrún í 7. ME var í þriðja sæti. Við þökkum nemendum kærlega fyrir að taka þátt, án þeirra væri ekki hægt að vera með svona viðburð.
![]() |
Bryndís Björk, Aðalbjörg, Anika og Guðný Kristín. |
![]() |
Sæþór Elí, Herdís Birma og Stefanía Sólrún. |
![]() |
Bryndís Björk og Herdís Birta |
Sjá fleiri myndir í myndasafni.
Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.